Námskeiðin „Gerðu það núna!" og „Skilvirkur tölvupóstur" hafa verið mjög vinsæl hjá starfsmönnum Isavia. Framsetning Gunnars er bæði skemmtileg og skýr og allt skipulag í kringum námskeiðin er 100%.
Námskeiðið „Gerðu það núna" er afar vinsælt hjá Marel en það hefur hjálpað starfsmönnum við að ná betri tökum á tölvupóstum,skipulagningu og forgangsröðun verkefna. Hagnýtt og skemmtilegt námskeið sem nýtist öllum, bæði í einkalífi og starfi.
Í nokkrum tilfellum hafa starfsmenn valið að fá einkatíma hjá Gunnari og í kjölfarið náð mun betri tökum á tímastjórnun og skipulagi. Ég mæli með þjónustu Gunnars þar er flottur fagmaður á ferðinni.
„Umfram allt; afar hagnýtt viðfangsefni og skemmtilegt, sem nýtist í leik og starfi.” „Sígilt og mjög hagnýtt viðfangsefni, sem á erindi til allra starfsmanna. Létt og skemmtilegt námskeið.”